Ríkisábyrgðir á afleiðusamningum Landsvirkjunar fólu ekki í sér ríkisaðstoð. Þetta er niðurstaða að lokinni rannsókn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).

Landsvirkjun er stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi og einn stærsti framleiðandi endurnýjanlegrar raforku í Evrópu segir í tilkynningu stofnunarinnar.

Í samningum um stóriðju er fyrirtækið í samkeppni við aðra framleiðendur í Evrópu. Til að verjast gengis- og vaxtaáhættu í skuldasafni sínu gerði Landsvirkjun ýmiss konar afleiðusamninga sem íslenska ríkið gekk í ábyrgð fyrir.

ESA hóf rannsókn á ríkisábyrgðunum árið 2017 með það að markmiði að kanna hvort þær væru í samræmi við EES-reglur um ríkisstyrki.

Hún hefur nú leitt í ljós að ábyrgðirnar á afleiðusamningum Landsvirkjunar leiddu ekki til efnahagslegs ávinnings fyrir fyrirtækið og er málinu því lokið að hálfu ESA.