Farþegum í innanlandsflugi fjölgaði um 25 þúsund manns á síðasta ári miðað við árið á undan, en þar af var aukningin langmest á Akureyrarflugvelli eða nærri 17 þúsund manns að því er Túristi greinir frá. Fjölgunin á Reykjavíkurflugvelli nam liðlega 8 þúsund en á Egilsstöðum rúmlega 2 þúsund. Hins vegar fækkun á öðrum innanlandsflugvöllum sem jafngilti fjölguninni á Egilsstöðum.

Þetta kemur fram í flugtölum Isavia sem ná aftur til ársins 2011 en í þeim er umferðin eftir minni flugvöllunum tekin saman í eina stærð. Í heildina nam farþegafjöldinn á innanlandsflugvöllunum rétt um 822 þúsundum í fyrra en til samanburðar var hann nærri 835 þúsund árið 2011.

Aukningin á Akureyrarflugvelli í fyrra var um helmingi meiri en árið á undan og þar með fór fjöldi flugfarþega fyrir norðan á ný yfir 200 þúsund en það gerðist síðast árið 2011.

Beina flugið frá Keflavík skýrir meiri fjölgun á Akureyri en Reykjavík

Í febrúar í fyrra hófst nýtt áætlunarflug Air Iceland Connect, sem áður hét Flugfélag Íslands, milli Akureyrar og Keflavíkur, í tengslum við millilandaflug, sem skýrir væntanlega hluta af þessari miklu aukningu fyrir norðan, sem ekki mælist að sama skapi í Reykjavík.

Gerir túristi síðan ráð fyrir að farþegafjöldinn á Akureyri taki ennþá stærra stökk í ár enda stendur nú breska ferðaskrifstofan Super Break fyrir beinu leiguflugi frá nokkrum breskum borgum til Akureyrar.

Aukningin verður þó ekki eins mikil og gera mátti ráð fyrir því tvisvar sinnum hafa flugstjórar þotanna hætt við að lenda á Akureyri vegna veður og því haldið til Keflavíkurflugvallar. Þar með eru farþegarnir skráðir þar en ekki fyrir norðan.