Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard &Poor's (S&P) hefur endurskoðað horfur á lánshæfismati Íslandsbanka og fært þær úr stöðugum í jákvæðar. Lánshæfismat Íslandsbanka er staðfest óbreytt með skammtíma einkunnina A-3 og langtíma einkunnina BBB-.

S&P hefur einnig staðfest mat sitt á lánshæfi Landsbankans. Lang- og skammtíma lánshæfiseinkunn Landsbankans er BBB-/A-3 og sem fyrr eru horfurnar metnar jákvæðar. Í gær var einnig tilkynnt að fyrirtækið hefði staðfest BBB-/A-3 lánshæfiseinkunn Arion banka og breytt horfum úr stöðugum í jákvæðar.

Breytingar S&P eru fyrst og fremst byggð á jákvæðum breytingum á íslensku efnahagslífi. S&P telurlíklegt að sú jákvæða þróun haldi áfram í ljósi þess árangurs sem náðst hefur við undirbúning afnáms fjármagnshafta. Nýverið uppfærði S&P lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins í BBB+. Að mati S&P felur staðfesting nauðasamninga föllnu bankanna í sér að verulega hafi dregið úr áhættuþáttum í tengslum við afnám fjármagnshafta.

Þá hafi betri rekstrarskilyrði skapast fyrir íslensk fjármálafyrirtæki og aðgangur þeirra að erlendum lánamörkuðum verður greiðari. Einnig telur S&P telur að eiginfjárstaða Arion banka muni halda áfram að styrkjast.