Í kvöld kemur í ljós hvort að Latibær hljóti hin eftirsóttu Emmy verðlaun (International Emmy of Television Arts and Sciences) sem besta barnasjónvarpsserían.

Latibær var tilnefndur ásamt fjórum öðrum, fyrir fjórðu seríuna af Latabæ, sem var framleidd á Íslandi og er nú í sýningu í um 100 löndum.

Magnús Scheving er staddur i Cannes fyrir hönd Latabæjar. „Verðlauninn eru ein stærsta viðurkenning sem sjónvarpsefni getur fengið. Tilnefning er því gríðarleg viðurkenning fyrir allt það kvikmyndagerðafólk sem kom að gerð þáttanna”, segir Magnús.

Latibær hefur áður hlotið viðurkenningar fyrir framúrskarandi efni á alþjóðavettvangi m.a. Bafta og Emil verðlaun en þetta er í annað sinn sem Latibær er tilnefndur til Emmy verðlaunana. Í fyrra skiptið var það til bandarísku Emmy en í dag er hann tilnefndur til alþjóðlegu Emmy verðlaunanna.