Á síðustu tólf mánuðum hefur launagreiðendum á Íslandi fjölgað um 754 eða 4,7%, frá síðustu 12 mánuðum þar á undan.

Voru að jafnaði 16.970 launagreiðendur á tímabilinu frá apríl 2016 til mars 2017 samkvæmt tölum Hagstofunnar . Greiddu launagreiðendur að meðaltali um 181.900 einstaklingum laun á tímabilinu sem er aukning um 8.300 manns, eða 4,8%, samanborið við 12 mánuðina þar á undan.

Mikil fjölgun hefur verið meðal launagreiðenda í byggingariðnaði og ferðaþjónustu meðan þeim hefur fækkað í sjávarútvegi. Fjöldi launagreiðenda í byggingariðnaði og mannvirkjagerð var 2.368 í marsmánuði, og um 10.900 launþegar, sem er fjölgun um launþega um 1.200, eða 13%, samanborið við á sama tíma fyrir ári.

Launagreiðendur í greinum sem einkenna ferðaþjónustuna voru 1.547 í mars og 24.000 launþegar, og hafði þeim síðarnefndu fjölgað þar um 2.800 sem einnig er 13% fjölgun.

Heildarfjölgun launþega á sama tíma nemur um 3% eða 5.900 manns. Þessar tölur taka ekki mið af fjölda einyrkja með eigin rekstur, sem er til að mynda algengt í byggingariðnaði.