Á 12 mánaða tímabili, frá júlí 2017 til júní 2018, voru að jafnaði 17.952 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 591 eða um 3,4% frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá Hagstofunni .

Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 192.000 einstaklingum laun sem er aukning um 7.500 (4,1%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Í júní 2018 voru 2.704 launagreiðendur og um 14.100 launþegar í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, og hefur launþegum fjölgað um 900 (7%) samanborið við júní 2017.

Á sama tímabili hefur launþegum í heild fjölgað um 3.500 (2%) en fækkað um 400 (4%) í sjávarútvegi.