Neytendastofa hefur lagt 500 þúsund króna stjórnvaldssekt á fyrirtækið Norðursiglingu ehf. fyrir að hafa brotið gegn ákvörðun stofnunarinnar frá 8. febrúar 2017.

Með fyrri ákvörðun Neytendastofu var Norðursiglingu bönnuð notkun myndmerkis og textans „Carbon Neutral“ í markaðssetningu fyrirtækisins þannig að villandi væri fyrir neytendur og ósanngjarnt gagnvart keppinautum. Að mati Neytendastofu voru úrbætur Norðursiglingar á markaðssetningarefni fyrirtækisins ófullnægjandi. Taldi Neytendastofa því nauðsynlegt að leggja stjórnvaldssekt á fyrirtækið að því er kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Neytendastofu.