Neytendastofa hefur ákveðið að leggja 250 þúsund króna dagsektir á smálánafyrirtækiin Kredia og Smálán þar til farið hefur verið að ákvörðun stofnunarinnar um gjald fyrir flýtiþjónustu. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar .

„Neytendastofa tók ákvörðun í júní 2014 um að Kredia og Smálán hafi brotið gegn lögum um neytendalán með því að reikna flýtigjald ekki inn í heildarlántökukostnað og árlega hlutfallstölu kostnaðar. Samkvæmt lögunum má árleg hlutfallstala kostnaðar (ÁHK) ekki vera hærri en 50% að viðbættum stýrivöxtum en þegar búið er að taka flýtigjald fyrirtækjanna með í útreikninga á ÁHK verður hún töluvert hærri.

Fyrirtækin kærðu ákvörðun Neytendastofu til áfrýjunarnefndar neytendamála sem staðfesti hana í desember s.l. Þrátt fyrir það hafa fyrirtækin ekki látið af háttsemi sinni og því hefur Neytendastofa nú tekið ákvörðun um að félögin skuli hvort um sig greiða dagsektir þar til látið verður af háttseminni,“ segir í frétt Neytendastofu.

Félögin hafa fjórtán daga til að fara að ákvörðuninni.