Viðskiptaráð Íslands hefur ráðið Leif Hreggviðsson sem sérfræðing á hagfræðisviði ráðsins.

Starf hans mun fyrst og fremst snúa að málefnastarfi ráðsins, svo sem greiningarvinnu og skrifum. Auk þess mun hann taka þátt í útgáfustarfi ásamt öðrum daglegum störfum ráðsins.

Leifur kemur til liðs við Viðskiptaráð frá Íslandsbanka þar sem hann starfaði á markaðssviði bankans. Þar áður starfaði hann sem ráðgjafi einstaklinga hjá Íslandsbanka.

Leifur lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands og lýkur hann grunnnámi við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík í vor.