Lögmannsstofan LEX hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna bloggfærslu Sigurðar G. Guðjónssonar lögmanns sem hann birti í dag á vefsvæði Pressunnar. Frá þessu greinir Vísir í dag.

Í umræddri bloggfærslu greindi Sigurður frá því að hann hefði verið kærður til siðanefndar Lögmannafélags Íslands vegna hótana sem gerðu atlögu að orðspori lögmannsstofunnar Lex. Málið sem um ræðir varðar Jakob Valgeir Flosason, skjólstæðing Sigurðar, sem þrotabú Glitnis hefur stefnt fyrir stjórnarsetu sína hjá fyrirtækinu Stím. Sigurður segist hafa farið fram á að Glitnir falli frá lögsókninni. Þess hafi hann meðal annars óskað vegna mögulegrar ábyrgðar lögmanna Lex vegna stjórnarsetu þeirra í félögum sem tengdust Glitni og Stími. Lex lögmenn taka þessu sem atlögu að orðspori sínu og hafa því kært Sigurð til siðanefndar.

Hér má lesa yfirlýsingu Lex í heild sinni:

Lögmannsstofan LEX hefur kært Sigurð G. Guðjónsson hæstaréttarlögmann til úrskurðarnefndar Lögmannafélags Íslands. LEX telur Sigurð hafa gerst sekan um tilraun til að hindra lögmenn stofunnar í að gæta hagsmuna umbjóðenda sinna og hafi með því gerst brotlegur við siðareglur lögmanna. Í tölvubréfi sem fimm lögmönnum LEX barst frá Sigurði miðvikudaginn 13. mars sl. komu fram alvarlegar hótanir í garð starfsmanna LEX. Í bréfinu veitti Sigurður, lögmannsstofunni LEX, tveggja klukkustunda frest til þess að falla frá málarekstri á hendur einum af umbjóðendum Sigurðar, ellegar yrði gerð atlaga að orðspori starfsmanna lögmannsstofunnar. Þess konar hótanir eru fordæmalausar í samskiptum lögmanna hér á landi og ekki er unnt að láta slík vinnubrögð óátalin. Því var samdægurs tekin ákvörðun um að kæra háttsemi Sigurðar til Lögmannafélags Íslands.

Vegna þeirra ásakana sem Sigurður hefur haft uppi er rétt að skýrt komi fram að starfsmenn LEX hafa í hvívetna sinnt störfum sínum í samræmi við lög og góða starfshætti. Vegna falls Glitnis banka fengust ekki þau gögn sem þurfti til að unnt væri að ljúka ársreikningsgerð fyrir þau félög sem Sigurður kýs að draga inn í umræðuna.

Tilraunir starfsmanna LEX til að afla þeirra hjá bankanum báru ekki árangur. Auðvelt er að geta sér til um ástæður þess, enda var mikið álag á starfsfólki bankans á haustdögum 2008. Starfsmenn LEX veittu hvorki bankanum né nokkrum öðrum ráðgjöf í tengslum við stofnun umræddra félaga eða fjárfestingar þeirra. Allar ákvarðanir um fjárhagslegar skuldbindingar þeirra félaga sem Sigurður týnir til voru teknar áður en að starfsmenn LEX tóku sæti í stjórn þeirra og engin starfsemi var í félögunum á meðan á stjórnarsetu starfsmannanna stóð. Um allt þetta ætti Sigurði G. Guðjónssyni að vera full kunnugt sem stjórnarmanni Glitnis banka á þessum tíma. Þrátt fyrir það kýs hann að haga málflutningi sínum með þeim ranga og ósmekklega hætti sem raun ber vitni.

Lögmannsstofan LEX átelur hótanir Sigurðar G. Guðjónssonar, enda teljast þær alvarleg tilraun til að hindra lögmenn í að gæta hagsmuna umbjóðenda sinna. Mál eins og þetta skal reka á réttum vettvangi, í sölum dómstóla, en ekki með meðulum eins og þeim sem lögmaðurinn beitir.