Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristján Þór Júlíusson, hefur leyst upp samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga að því kemur fram á mbl.is . Ráðherrann vill þó ekki staðfesta að hópurinn hafi verið leystur upp en segir að verið sé að vinna í málinu.
Ekki er vitað hvort ráðherra ætli að skipa upp á nýtt í hópinn eða hvort hann verði lagður niður. Hins vegar segir í frétt mbl.is að af ákvörðun ráðherrans megi ráða að ekki standi til að ráðst í umfangsmikla endurskoðun á búvörusamningnum þegar færi gefst, árið 2019.
Hópurinn var skipaður af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur en það var hennar fyrsta verk að endurskipa í hópinn, var það ætlun Þorgerðar að auka hlut umhverfis- og neytendasjónarmiða við endurskoðun búvörusamninga. Í hópnum sátu:
- Svanfríður Jónasdóttir, formaður (landbúnaðarráðherra)
- Brynhildur Pétursdóttir (landbúnaðarráðherra)
- Elín Margrét Stefánsdóttir (landbúnaðarráðherra)
- Jóna Björg Hlöðversdóttir (landbúnaðarráðherra)
- Þórunn Pétursdóttir (umhverfisráðherra)
- Páll Rúnar Mikael Kristjánsson (Félag atvinnurekenda)
- Róbert Farestveit (Alþýðusamband Íslands)
- Ólafur Arnarsson (Neytendasamtökin)
- Andrés Magnússon (Samtök atvinnulífsins)
- Sindri Sigurgeirsson (Bændasamtök Íslands)
- Björgvin Jón Bjarnason (Bændasamtök Íslands)
- Elín Heiða Valsdóttir (Bændasamtök Íslands)
- Helga Jónsdóttir (Bandalag starfsmanna ríkis og bæja)