Lífeyrissjóðir ásamt öðrum innlendum vörsluaðilum séreignarlífeyrissparnaðar munu fá leyfi frá Seðlabanka Íslands til að fjárfesta erlendis. Seðlabankinn segir í tilkynningu að áðurnefndir aðilar fái undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál til að geta fjárfest í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri.

Samanlagt mun heimild þessara aðila nema 10 milljörðum króna og kemur hún til með að skiptast milli þeirra eftir stærð og hreins innstreymis. Stærðin mun fá 70 prósent vægi og innstreymið 30 prósent vægi. Útreikningurinn byggir á upplýsingum úr nýjustu ársreikningabók Fjármálaeftirlitsins um lífeyrissjóði, þ.e. tölum frá árinu 2013. Mun undanþága miðast við að heimild hvers aðila gildi til loka þessa almanaksárs.

„Gjaldeyrisinnstreymi að undanförnu og minni óvissa um þróun greiðslujafnaðar í framhaldi af setningu laga á Alþingi sem lúta að uppgjöri búa fallinna fjármálafyrirtækja og kynningu áforma varðandi svokallaðar aflandskrónur síðar á yfirstandandi almanaksári skapar svigrúm til fjárfestinga lífeyrissjóða og annarra vörsluaðila séreignarsparnaðar í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.

„Í slíkum fjárfestingum felst þjóðhagslegur ávinningur þar sem lífeyrissjóðunum er gert mögulegt að bæta áhættudreifingu í eignasöfnum á sama tíma og dregið er úr uppsafnaðri erlendri fjárfestingarþörf lífeyrissjóðanna þegar fjármagnshöft verða leyst. Þar með er dregið úr hættu á óstöðugleika í kjölfar losunar fjármagnshafta.“

Þeim lífeyrissjóðum og vörsluaðilum séreignarsparnaðar sem áhuga hafa á að sækja um undanþágu til framangreindra viðskipta er bent á að senda inn umsókn til gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands.