Lífeyrissjóður verslunarmanna keypti í dag 100 milljónir hluta í Símanum á genginu 3,4, að því er kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar.

Eftir viðskiptin á lífeyrissjóðurinn 1.377,2 milljónir hluta í Símanum, eða 14,3% af heildarhlutafé Símans. Þegar farið var í útboðið átti Lífeyrissjóðurinn 13,2% eignarhlut í Símanum.