Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, funduðu í dag og ræddu meðal annars ástandið í Sýrlandi, flóttamannastrauminn, jafnréttismál og málefni norðurslóða og hafsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Utanríkisráðuneytisins.

Ban Ki-moon kom til landsins seint í gærkvöldi, en hann er staddur hér á landi til að flytja stefnuræðu í Hörpu á þingi Arctic Circle - Hringborði Norðurslóða, sem hófst í gær og lýkur á morgun. Í dag fékk hann Arctic Circle verðlaunin, en þau eru veitt einstaklingum, stofnunum eða samtökum sem hafa beitt sér fyrir málefnum norðurslóða. Áhrif loftslagsbreytinga og norðurslóðir voru megininntak ræðu Ban Ki-moon á Hringborði norðurslóða í Hörpu sem hann ávarpaði í dag. Aðalframkvæmdastjórinn fundaði einnig með fulltrúum Háskóla Sameinuðu þjóðanna og flutti einnig ávarp á ráðstefnu um arfleifð og áhrif leiðtogafundarins í Höfða, sem haldin var í Háskóla Íslands. Þá fundaði hann með Sigurði Inga Jóhannssyni forsætisráðherra, þar sem rædd voru loftslagsmál, málefni norðurslóða, heimsmarkmið um sjálfbæra þróun og jafnréttismál.

Lilja og Ban fögnuðu því að skilyrðum fyrir alþjóðlegri fullgildingu Parísarsamningsins um loftslagsmál hefur nú verið náð og gengur hann í gildi í næsta mánuði. Ísland var á meðal fyrstu 30 ríkjanna sem fullgiltu samninginn og afhenti utanríkisráðherra Ban Ki-moon fullgildingarskjal Íslands í höfuðstöðvum SÞ í síðasta mánuði.

Á fundi sínum ræddu Lilja og Ban heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun fram til 2030 sem aðildarríki SÞ settu sér árið 2015. Megináherslur Íslands í þróunarsamvinnu eru jafnrétti, hafið, endurnýjanleg orka og landgræðsla. Lagði Lilja áherslu á að til þess að þau yrðu að veruleika væri jöfn aðkoma kvenna og karla lykilatriði.

Lilja sagðist vilja sjá fleiri konur koma að sáttaumleitunum og friðaruppbyggingu á átakasvæðum. „Öll gögn sýna að friður er mun líklegri til að komast á ef konur sitja við samningaborðið og mun líklegra að friður haldist ef konur taka virkan þátt í friðaruppbyggingu. Fleiri konur, meiri friður,“ segir Lilja.

Þau ræddu einnig mannréttindamál, þar á meðal fullgildingu Íslands á samningi um réttindi fatlaðs fólks. Ýmis málefni SÞ voru rædd, meðal annars umbætur á starfsemi öryggisráðs SÞ. Ástandið í Sýrlandi og fyrir botni Miðausturlanda var ennfremur til umræðu og greindi utanríkisráðherra frá framlögum Íslands vegna flóttamannavandans, en fyrirséð er að Ísland taki á móti rúmlega 100 flóttamönnum frá Sýrlandi á þessu ári. Þá ræddu þau einnig stöðu mála á Kóreuskaganum.