Ásgeir Jónsson, forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands, segir að staðan á íslenskum vinnumarkaði kunni að hafa verið skrifuð í skýin við úrskurð kjararáðs um hækkun á launum alþingis- og embættismanna. Hins vegar sé vandséð að nokkur muni græða á þeirri vegferð.

Ásgeir bendir á að staðan á íslenskum vinnumarkaði sé einstæð fyrir fjórar sakir. „Í fyrsta lagi – er farið fram á miklar kauphækkanir þegar samdráttur blasir við í helstu útflutningsgrein landsins – ferðaþjónustu. Slíkt þekktist ekki áður – ef illa áraði í sjávarútvegi. Yfirleitt hafa íslensk verkalýðsfélög sýnt hörku í uppsveiflu en hófsemi í niðursveiflu. Þessu hefur nú verið snúið á hvolf - þegar efnahagslífið er nú á leið niður eftir 7 ára hagvöxt,“ segir Ásgeir í færslu á Facebook .

Þá séu kröfur verkalýðsfélaganna lagðar fram án kostnaðarmats eða áhrifagreiningar. „Það er alls ekki sjálfgefið að niðurstaða nafnlaunahækkana sé ávallt í samræmi við yfirlýstan tilgang. Þess eru mörg dæmi – innanlands og utan – að miklar hækkanir á grunntöxtum hafi leitt til verri kjara hjá hinum verst settu – svo sem vegna verðbólgu, hærri vaxta og aukins atvinnuleysis,“ segir Ásgeir.

Í þriðja lagi taki kröfurnar ekki taka tillit til nútíma hagstjórnar sem miðast við verðbólgumarkmið og ríkisfjármálareglur. „Allar vestrænar þjóðir búa við slíkan ramma – og yfirleitt þykir hann sjálfsagður. Kostnaðurinn við að brjóta ramman kemur fram með gengisfalli, verðbólgu og vaxtahækkunum – sem bitnar verst á þeim sem síst skyldi.“

Í fjórða lagi virðist sem kröfugerðarfólk forðist hina raunverulegu efnahagsumræðu um áhrif þeirra krafna sem lagðar hafa verið fram. Í þessu efni segir Ásgeir að takmarkað gagn sé að útdráttum úr Das Kapital eða reynslusögum af ónafngreindum einstaklingum.