Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,6% í dag og endaði í 1,815 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 38,71%.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Marel, eða um 0,20% í 403 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa Reita hækkaði einnig um 0,60% í 200 milljóna króna króna viðskiptum. Einnig hækkaði gengi bréfa Einskips um 1,45% í 157 milljóna króna viðskiptum.

Mest lækkaði gengi bréfa N1 um 2,13% í 350 milljóna króna viðskiptum. Þar á eftir kemur Icelandair, en gengi bréfa fyrirtækisins lækkaði um 0,16% í viðskiptum upp á 305 milljónir króna.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 1,8 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,8 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 1,8 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 4,6 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,6 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 4 milljarða króna viðskiptum.