Fjármálastjóri WOW air, Stefán Sigurðsson, sendi tölvupóst á starfsmenn flugfélagsins þar sem hann lofar því að laun þeirra verði greidd á réttum tíma eða þann 30. nóvember næstkomandi.

Í póstinum segir að honum hafi borist margar spurningar frá starfsmönnum sökum „fjölmiðlafárs" síðsutu daga og í ljósi þess vildi hann ítreka að allir muni fá laun sín greidd síðasta viðskiptadag þessa mánaðar.