Læknafélag Íslands og samninganefnd ríkisins hafa fundað reglulega frá því í lok mars en kjarasamningar lækna losnuðu fyrir einum og hálfum mánuði. Mjög fer að draga til tíð­ inda á vinnumarkaði á næstunni því í ágúst renna 29 samningar út meðal annars vegna þess að þá fellur úr gildi gerðardómur 18 aðildarfélaga BHM.

Þá verða meðal annars hjúkrunarfræðingar og skurðlæknar með lausa samninga. Næsta haust losna síðan samningar Kennarasambands Íslands og Félags grunnskólakennara. Seinni hluti þessa árs gæti því orðið annasamur fyrir Bryndísi Hlöðversdóttur ríkissáttasemjara.