Stærsta lögmannsstofan landsins, Logos, hagnaðist um 570 milljónir króna árið 2016. Dróst hagnaður stofunnar saman um rúmlega 30% frá árinu 2015. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Tekjur Logos námu 2.232 milljónum króna á árinu og drógust saman um 430 milljónir milli ári. Munaði þar mest um rúmlega 300 milljóna króna samdrátt í í tekjum vegna starfsemi lögmannsstofunnar í London, en Logs hefur starfrækt skrifstofu í borginni frá árinu 2006. Samdrátturinn skýrist einkum af nærri 30% veikingu breska pundsins gagnvart krónunni á árinu 2016