RÚV fullyrðir að umfangsmiklar aðgerðir hafi farið fram í síðustu viku í tengslum við söluna á Skeljungi árið 2008 þar sem einstaklingar hafi verið handteknir en sleppt í kjölfar skýrslutöku.

Félag sem var að meirihluta í eigu hjónanna Guðmundar Arnar Þórðarsonar og Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur, og Birgis Bieltvedts keypti 51% í Skeljungi og færeyska olíufélagið P/F Magn af Glitni árið 2008. Afgangur af hlut bankans, sem þá var orðinn Íslandsbanki, var keyptur á um milljarð króna árið 2010 og 8% hlutur Birgis var keyptur út árið 2011. Einar Örn Ólafsson, hélt utan um söluna hjá Glitni en hann varð síðar forstjóri Skeljungs. Hjónin seldu svo Skeljung og P/F Magn á um tíu milljarða króna árið 2013 til framtakssjóðsins SÍA II í rekstri hjá Stefni.

RÚV segir að grunur hafi leikið á um að starfsmenn bankans hefðu hagnast óeðlilega á sölunni, og að félögin hafi verið seld á undirverð, en athugun á árinu 2009 hafi ekki leitt neitt grunsamlegt í ljós. Árið 2016 hafi bankinn hins vegar að taka málið upp að nýju og kæra þrjá einstaklinga sem henni tengdust til lögreglu.

Á fimmtudaginn hafi einstaklingar verið handteknir og aðrir kallaðir til skýrslutöku vegna rannsóknar málsins en öllum hafi verið sleppt um kvöldið. Þá hafi verið ráðist í húsleitir og lagt hald á mikið magn gagna. Samkvæmt upplýsingum RÚV snýr rannsóknin meðal annars að meintum umboðssvikum.

Svanhildur Nanna tilkynnti á föstudaginn að hún hefði hætt sem stjórnarformaður VÍS af persónulegum ástæðum en hyggðist sitja áfram í stjórn félagsins . Í yfirlýsingu sem Svanhildur Nanna sendi RÚV í dag segir hún að allar upplýsingar sem óskað hafi verið eftir hafi verið veittar og að kaupin hafi borið að með eðlilegum hætti. Hún vonist til að opinber rannsókn muni leiða það í ljós.

Yfirlýsing Svanhildar Nönnu í heild sinni:

Embætti héraðssaksóknara hefur nú til skoðunar kaup okkar á hlutum í Skeljungi hf. árið 2008 og færeyska félaginu P/F Magni með öðrum fjárfestum árið 2009. Rannsóknin er tilkomin vegna kæru sem Íslandsbanki lagði fram árið 2016.

Kaup okkar á hlutum í umræddum félögum bar að með eðlilegum hætti og við teljum einsýnt, að opinber rannsókn á viðskiptunum muni eyða öllum vafa um réttmæti þeirra.

Við höfum veitt fulltrúum héraðssaksóknara allar þær upplýsingar sem þeir hafa óskað eftir og munum áfram aðstoða þá við rannsóknina. Við höfum að eigin frumkvæði greint Fjármálaeftirlitinu frá henni, stjórnendum og regluvörðum þeirra skráðu félaga sem við tökum þátt í að stýra. Rétt er að árétta, að þau félög tengjast rannsókninni ekki á nokkurn hátt. Við munum áfram sitja í stjórnum félaganna, en Svanhildur Nanna ákvað að láta öðrum eftir stjórnarformennsku í VÍS hf. á meðan rannsóknin stendur yfir.

Við væntum þess að málið fái skjóta meðferð og rannsóknin gangi hratt fyrir sig.