Landssamband smábátaeigenda hefur hrundið af stað verkefni sem nær til allra smábátaeigenda. Það snýr að því að óska tilboða frá olíufélögunum í viðskipti við félagsmenn LS.

Undirbúningur hefur staðið yfir um nokkurt skeið þar sem leitað var til sérfræðinga á þessu sviði.

Markmiðið er að lækka verð á olíu til félagsmanna í LS, að afslátturinn telji fleiri krónur en nú er. Til að það takist verða smábátaeigendur að sýna mikla samstöðu og taka allir sem einn þátt í útboðinu, segir á vef LS.