Þýska flugfélagið Lufthansa hefur tilkynnt um að það muni bæta Keflavíkurflugvelli við sem heilsársáfangastað nú í haust. Félagið hefur síðastliðin ár flogið til Keflavíkur frá Frankfurt yfir sumartímann en mun næsta vetur fljúga þrisvar í viku milli áfangastaðanna.

Í tilkynningu frá flugfélaginu kemur fram að ástæðan sé mikil eftirspurn. Isavia hefur haft það sem markmið að fjölga flugfélögum sem fljúga til landsins allt árið og rímar það við markmið ferðaþjónustunnar um að minnka árstíðarsveifluna í ferðaþjónustu. „Það er sérlega ánægjulegt að Lufthansa bætist í hóp heilsársfélaga því Þjóðverjum hefur ekki fjölgað jafnmikið yfir vetrartímann og ferðamönnum annarra þjóða og því mikil tækifæri sem liggja í því að kynna Þjóðverjum íslenskan vetur. Frankfurt flugvöllur er stór tengiflugvöllur og mun þessi viðbót Lufthansa einnig bæta tengingar frá Íslandi til fjölda áfangastaða í bæði Evrópu og Asíu í gegnum Frankfurt.“ segir í tilkynningu frá Isavia.