Lúvísa Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem gæðastjóri hjá Hafnarfjarðabæ. Um er að ræða nýja stöðu hjá bænum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðabæ.

„Lúvísa lauk Msc gráðu í byggingarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 og Bsc í byggingartæknifræði frá sama skóla árið 2008.  Lúvísa hefur síðastliðið ár starfað hjá Actavis, þar sem hún hefur séð um daglegan rekstur öryggis-, heilsu- og umhverfisstjórnunarkerfis fyrirtækisins.

Þar á undan gegndi hún starfi gæða- og öryggisstjóra hjá Vélsmiðjunni Hamri, þar sem hún sá m.a. um innleiðingu á vottuðu gæðastjórnunarferli.  Lúvísa hefur einnig sinnt kennslu í aðferðafræði og tölfræði við Háskólann í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni.  Lúvísa mun hefja störf hjá Hafnarfjarðarbæ í byrjun næsta árs.