MP banki hf. hefur selt Lýsingu hf. rekstur Lykils, eignaleigusviðs MP banka. Samningar um kaupin voru undirritaðir á föstudaginn.

Sala MP banka á Lykli er liður í því að skerpa enn frekar á sérhæfðri bankaþjónustu MP banka og um leið að einfalda skipulag bankans og auka áherslu á kjarnastarfsemi. Kaup Lýsingar á Lykli falla einnig vel að fjármögnunarstarfsemi Lýsingar og áætlunum félagsins um sífellt öflugri starfsemi og markaðssókn.

Þann 23. mars 2012 tók eignaleigusvið MP banka til starfa undir heitinu Lykill. Lykill býður bílasamninga, bílalán og kaupleigusamninga til fjármögnunar atvinnutækja.

Starfsemin verður áfram rekin undir vörumerkinu Lykill og réttindi og skyldur samkvæmt samningum haldast óbreyttar gagnvart viðskiptavinum.