Neytendastofa hefur ákvarðað að fyrirtækin Brú Venture Capital og Brú lífeyrissjóður væru ekki keppinautar á markaði og að það væri ekki hætta á því að neytendur rugluðust á félögunum tveimur. Neytendastofu hafði borist kvörtun frá Brú Venture Capital, þar sem kvartað var yfir notkun Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga á auðkenninu BRÚ.

Litið var til þess að notkun fyrirtækjanna á auðkennunum væri ólík þar sem bæði fyrirtæki nota orðið BRÚ sem hluta af lengra heiti og myndmerki fyrirtækjanna eru jafnframt afar ólík að mati Neytendastofu. Því var Brú lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga ekki bannað að nota auðkennið BRÚ.