Magnús Viðar Skúlason hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra fjarskiptafyrirtækisins IMC Ísland ehf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá IMC Ísland.

Magnús hefur starfað hjá IMC Ísland frá árinu 2013 við verkefnastjórnun og samningagerð við erlend fyrirtæki. Fyrir það starfaði hann hjá Hátækni frá 2002 til 2013 meðal annars sem sérfræðingur í Nokia-lausnum og við vefstjórn.

IMC Ísland rekur sitt eigið símakerfi og dreifikerfi fyrir landsbyggðina ásamt því að vera með reikisamning við Símann og Vodafone. ÞEss auki hefur IMC Ísland samið við yfir 420 erlend símafyrirtæki og býður þar með upp á reikiþjónustu í 178 löndum.