Síðdegis í gær kom Beitir NK, skip Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, að vaðandi makríl á Langabanka sunnan við Hvalbak. Það kraumaði í sjónum á stóru svæði á bankanum og austur- og norðaustur af honum. Beitismenn tóku eitt hol um fimm leytið, drógu í hálftíma og fengu 500 tonn, segir frá í frétt á heimasíðu fyrirtækisins.

Tómas Kárason skipstjóri segir í viðtali við heimasíðuna að þeir hafi í reynd rétt dýft niður trollinu en þarna hafi fiskurinn verið þéttur og í miklu magni.

„Þetta var alveg hreinn makríll sem fékkst og fiskurinn var afar stór, 526 grömm að meðaltali. Þegar komið var á svæðið heyrðist áberandi hviss hljóð þegar gengið var út á brúarvænginn enda spriklandi fiskur í yfirborðinu hvert sem litið var. Þetta voru heilu breiðurnar. Við vorum fyrstir á svæðið og brátt voru komin fleiri skip. Sum þeirra fengu góðan afla á stuttum tíma en önnur fengu lítið. Eftir þetta eina hol gerðum við hlé á veiðum enda er nú verið að landa úr Berki í fiskiðjuverið í Neskaupstað og Bjarni Ólafsson bíður löndunar. Það er með ólíkindum, miðað við fiskinn sem sást í gær, að nú er lítið um að vera hjá skipunum. Það gengur á ýmsu á makrílveiðunum núna,“ segir Tómas í fréttinni.