Makríllinn er heldur seinna á ferðinni við landið í ár en síðustu ár. Í frétt Síldarvinnslunnar kemur fram í viðtali við Guðmund Jónsson, skipstjóra á Vilhelm Þorsteinssyni að það sé eðlilegt þar sem sjávarhiti sé lægri í ár en undanfarin ár og það hafi sín áhrif.

Síðustu daga hefur afli þó verið að glæðast en skipin hafa gjarnan verið að veiðum í Háfadýpinu austur af Vestmannaeyjum, að sögn Guðmundar; makríllinn sem þar fæst lofar góðu; stór og fallegur en í honum er dálítil áta.

Gert er ráð fyrir að makrílvinnsla hefjist í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað snemma í næstu viku og er það seinna en síðustu ár. Í fyrra hófst vinnsla í verinu 21. júlí þegar Bjarni Ólafsson AK kom með fyrsta farminn. Gera má ráð fyrir að allt verði prufukeyrt í verinu fram að verslunarmannahelgi og síðan hefjist vinnsla af fullum krafti að henni lokinni.

Karl Rúnar Róbertsson, gæðastjóri hjá Síldarvinnslunni, segir í frétt Síldarvinnslunnar að allt sé að verða klárt til móttöku makríls í fiskiðjuverinu.

„Það er verið að leggja lokahönd á nokkur verkefni og setja saman einhver færibönd en því verður lokið núna í vikunni. Hér verður allt klárt um helgina,“ segir Karl Rúnar.