Makrílvertíðarstemning er nú ríkjandi í Neskaupstað. Veiðiskip koma og fara og flutningaskip lestar afurðir. Það er líf og fjör í höfninni, segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Í fiskiðjuverinu starfa um 100 manns á þrískiptum vöktum en fiskimjölsverksmiðjan tekur síðan á móti afskurði og öllu því sem flokkast frá við manneldisvinnsluna, en það er sáralítill hluti þess afla sem á land kemur.

í fréttinni segir frá því að Bjarni Ólafsson AK kom með 160 tonn af makríl á föstudaginn og var sá afli nýttur til að prófa nýjan búnað í fiskiðjuverinu. Beitir NK kom síðan með 640 tonn í gær og þá hófst vinnsla af fullum krafti. Börkur NK kom síðan í morgun með rúmlega 600 tonn og bíður hann löndunar, en Bjarni Ólafsson er á miðunum.

Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki, segir í samtali við heimasíðuna að afli skipsins hefði fengist í fjórum stuttum holum ofarlega í Lónsdýpinu.

„Það var töluvert að sjá þarna í gærkvöldi og ég held að bátarnir sem voru þarna hafi verið að fá þokkalegan afla. Það var hins vegar lítið að sjá fyrri partinn í gær. Löndun mun hefjast hjá okkur síðdegis en þá verður lokið við að landa úr Beiti,“ sagði Hálfdan.