Á vef grænlensku landsstjórnarinna r er frá því skýrt að makrílveiðar séu hafnar í grænlenskri lögsögu. Ilivileq, sem Arctic Prime Fisheries gerir út og er að hluta í eigu Brims, er eina skipið sem komið er á miðin. Í gær var skipið komið með 146 tonna afla.

Eins og fram hefur komið er makrílkvótinn við Grænland 85.000 tonn,  sem skiptist þannig að 35.000 tonn ganga til grænlenskra skipa, 20.000 tonn til erlendra skipa sem útgerðir sem eiga grænlensk skip taka á leigu, og loks 30.000 tonn til grænlenskra útgerða sem ekki eiga fiskiskip.

Fram kemur á vefnum að hingað til hafi verið gefin út 13 makrílleyfi þar sem um 20 skip koma við sögu í veiðum.