Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar í morgun með 160 tonn af makríl og fór hann allur til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Aflinn fékkst á Papagrunni í tveimur stuttum holum.

Gísli Runólfsson, skipstjóri á Bjarna, segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar að fiskurinn sé ágætur miðað við árstíma.

„Við tókum þessi tvö hol og fiskurinn verður notaður til að prufa nýjan búnað í fiskiðjuverinu. Makrílveiðin hefur verið heldur misjöfn en það hefur afar lítið verið leitað hér eystra, það hafa einungis tvö eða þrjú skip verið að veiðum hér. Vandinn er sá að það er alls staðar síld en við reynum að sneiða hjá henni eins og mögulegt er. Við fengum einhverja síld í fyrra holinu en í því seinna var hreinn makríll. Nú er vertíðin að byrja og við erum bjartsýnir. Ef menn eru ekki bjartsýnir í upphafi vertíðar þá geta menn hætt þessu – svo einfalt er það,“ sagði Gísli.

Gert er ráð fyrir að makrílvertíðin hjá Síldarvinnslunni hefjist af fullum krafti nú um og upp úr helgi en unnið hefur verið að undirbúningi hennar að undanförnu. Sennilega mun Beitir NK halda til makrílveiða í kvöld og Börkur NK síðan í kjölfarið, segir í fréttinni.