Næstkomandi mánudag þann 13. ágúst býður lagadeild HR upp á fund um þriðja orkupakka Evrópusambandsins og áhrif hans á hagsmuni ríkjanna og valdheimildir. Meðal fyrirlesara eru Alberto Pototschnig, forstjóri ACER, stofnunar ESB sem hefur umsjón með samstarfi eftirlitsstofnana ríkjanna á orkumarkaði, sem mun meðal annars kynna innri raforkumarkað Evrópu og hlutverk stofnunarinnar. Henrik Bjørnebye, prófessor við lagadeild Háskólans í Osló, mun einnig fjalla um innleiðingu þriðja orkupakkans í Noregi. Dagskrá og nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu HR. Fundurinn verður haldinn í stofu M209 í Háskólanum í Reykjavík.

Umræða hefur skapast hér á landi og í Noregi um áhrif þriðja orkupakka Evrópusambandsins (ESB) á hagsmuni ríkjanna og valdheimildir á orkusviðinu. Umræðan hefur einkum snúist um hvort samþykkt hans feli í sér framsal valdheimilda til stofnunar ESB sem hefur umsjón með samstarfi eftirlitsstofnana ríkjanna á orkumarkaði (ACER). Þingið í Noregi samþykkti orkupakkann síðastliðið vor en hann hefur ekki komið til umræðu á Alþingi.

Á fundinum verður fjallað um ýmis þau álitamál sem snert hefur verið á í umræðunni hér á landi og í Noregi, þ.á m. um hlutverk og valdheimildir ACER og áhrif innleiðingar þriðja orkupakkans á stjórnun orkulinda.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

9:00-9:10 Ragnhildur Helgadóttir, forseti lagadeildar HR og fundarstjóri setur fundinn.

9:10-9:45 Alberto Pototschnig, forstjóri ACER: ACER‘s Functions and Responsibilities.

9:45-10:10 Kristín Haraldsdóttir, lektor við lagadeild HR: Meginefni orkulöggjafar ESB og möguleg áhrif þriðja orkupakkans hér á landi.

10:10-10:40 Henrik Bjørnebye, prófessor við lagadeild Háskólans í Osló: Implementation of the third Energy Package in Norway, the main challenges.

10:40 – 11:00 Kaffihlé.

11:00 – 11:20 Baldur Dýrfjörð, lögfræðingur Samorku: Áhrif þriðja orkupakkans á heimili og fyrirtæki í landinu.

11:00 – 11:20 Guðni Jóhannesson, orkumálastjóri: Áhrif þriðja orkupakkans á hlutverk og starfsemi Orkustofnunar.

11:40-12:00 Fyrirspurnir og umræður