Eigendaskipti hafa nú orðið á Nauthóli Bistro og Málinu, veitingaþjónustu Háskólans Í Reykjavík, sem staðsett er í Nauthólsvík við Öskjuhlíðina.
Hjónin Sigrún Guðmundsdóttir og Tómas Kristjánsson hafa tekið við veitingastaðnum af Guðríði Maríu Jóhannesdóttur og Jóhannesi Stefánssyni. Frá þessu er greint á vef Veitingageirans .
Eigendabreytingarnar gengu í gegn í marsbyrjun. Reksturinn verður áfram með svipuðu sniði, og samstarfinu verður haldið áfram við Háskólann í Reykjavík.