Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 2,21%. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 10,23% frá áramótum og stendur nú um 1.885,57 stigum. Heildarvelta á mörkuðum nam 4,7 milljörðum króna, þar af nam velta á hlutabréfamarkaði rúmum 4 milljörðum og velta á skuldabréfamarkaði 522 milljónum.

Gengi hlutabréfa Marels hækkaði mest í dag eða um 4,91% í 1.665 milljón króna viðskiptum. Einnig hækkaði gengi hlutabréfa 3,09% í 263,5 milljón króna viðskiptum. Reitir hækkuðu um 1,46% í 150,8 milljón króna viðskiptum.

Gengi hlutabréfa Haga lækkaði hins vegar um 0,64% 180,3 milljón króna viðskiptum. Einnig lækkaði gengi Eimskipafélags Íslands um 0,31% í 134,2 milljónir króna.

Vísitölur GAMMA

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,6% í dag í 4,2 milljarða viðskiptum. Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 2% í dag í 4,1 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 0,1 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 0,1 milljarða viðskiptum.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,1% í dag í 0,2 ma. viðskiptum.