Hagnaður fjórða ársfjórðungs 2016 nam 22,6 milljónum evra. Hagnaðurinn eykst talsvert á milli ára, en hann nam 9,9 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi árið 2015. Tekjur á fjórða ársfjórðungi 2016 námu 250 milljónum evra, samanborið við 201,9 milljónir evra á sama tíma árið 2015. Hagnaður á hlut á ársfjórðungnum var 3,15 evru sent samanborið við 1,4 evru sent á sama tíma árið áður.

EBITDA á fjórða ársfjórðungi 2016 var 47,3 milljónir evra sem er 18,9 af tekjum. Pro forma leiðrétt EBITDA á sama tíma árið 2015 nam 30 milljónum evra eða 14,9% af tekjum. „Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 74,3 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi 2016 . Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) í lok fjórða ársfjórðungs 2016 er x2,25,“ segir í tilkynningu frá Marel.

Árið 2016 í heildina

Hagnaður Marels árið 2016 nam 75,8 milljónum evra, samanborið við 56,7 milljónir milljónir evra árið 2015. Hagnaður á hlut nam 10,59 evru sentum en 7,93 evru sentum árið 2015.

Tekjur ársins 2016 námu 969,7 milljónum evra en 818,6 milljónum evra árið 2015. EBITDA fyrir árið 2016 var 175,4 milljónir evra (18,1% af tekjum) borið saman við leiðrétt EBITDA 2015 sem nam 135,8 milljónum evra eða 16,6% af tekjum.

Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 179 milljónum evra í fyrra, samanborið við 119,7 milljónir evra árið 2015. Nettó vaxtaberandi skuldir í lok ársins 2016 námu 403,6 milljónum evra, en 142,8 milljónum evra í lok ársins 2015.

Metsala á fjórða ársfjórðungi

„Mótteknar pantanir á fjórða ársfjórðungi 2016 nema 295 milljónum sem er metsala og dreifist sú sala vel á milli kjúklinga-, kjöt og fiskiðnaðar. Aukin fjöldi stærri verkefna á fjórða ársfjórðungi er í takt við það sem kynnt var með rekstrarniðurstöðu þriðja ársfjórðungs 2016 þegar sagt var að horfurnar fyrir stærri verkefni hefðu tekið við sér að nýju eftir laka byrjun á árinu. Fyrir árið í heild voru mótteknar pantanir fyrir staðlaða vöru og varahluti sterkar í öllum iðnuðum. Pantanabókin í árslok 2016 stendur í 350 milljónum evra samanborið við 320 milljónir í árslok 2015,“ er tekið fram í tilkynningunni frá Marel.

Á aðalfundi Marel fyrir árið 2017, sem haldinn verður þann 2. mars, mun stjórn Marel leggja til að hluthafar fái greiddan arð fyrir rekstrarárið 2016 sem nemur 2,14 evru sentum á hlut.

Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um 15,3 milljónum evra sem samsvarar 20% af nettó hagnaði ársins. Stjórn Marel hefur jafnframt veitt stjórnendum félagsins heimild til að kaupa bréf fyrir allt að 15 milljónir evra að kaupvirði. Hlutirnir eru ætlaðir sem endurgjald í mögulegum fyrirtækjakaupum.

„Marel gerir ráð fyrir að markaðsvöxtur nemi 4-6% á næstu árum. Með sterkri markaðsstöðu og nýsköpun ætlar Marel með innri vexti að vaxa hraðar en markaðurinn. Gera má ráð fyrir því að afkoman verði breytileg milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna. Að auki hyggst félagið halda áfram að vaxa með yfirtökum í samræmi við stefnu félagsins,“ er jafnframt tekið fram í tilkynningunni.

Gengu frá kaupunum á MPS í byrjun árs 2016

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, segir við tilefnið: „Árið 2016 var frábært ár fyrir Marel. Sölumet var slegið í fjórða ársfjórðungi með mótteknum pöntunum upp á 295 milljónir evra og dreifist sú sala vel á milli kjúklinga-, kjöt og fiskiðnaðar. Viðskiptavinir okkar eru að setja upp tímamótaverksmiðjur í Asíu, Suður-Ameríku, Norður-Ameríku og Evrópu sem mun gera þeim kleift að bjóða upp á hágæða matvæli á hagstæðu verði. Önnur spennandi verkefni voru einnig tryggð í Afríku og Mið-Austurlöndum.

Við gengum frá kaupunum á MPS í byrjun ársins 2016 og gátum þar með boðið viðskiptavinum okkar í kjötiðnaði upp á heildarlausnir. Sameining félaganna gengur vel og hefur þegar skapað aukin verðmæti fyrir viðskiptavini okkar og hluthafa. Vert er að minna á að við yfirtókum MPS í byrjun árs án þess að gefa út nýtt hlutafé og hagnaður á hlut jókst um 34% á milli ára. Fjárhagsstaða félagsins er traust og sjóðsstreymi er sterkt sem leiðir til þess að skuldahlutfall er x2,25 EBITDA við árslok 2016.

Til að tryggja áframhaldandi vöxt og virðissköpun höfum við fjárfest vel í innviðum okkar og kynnt til sögunnar nýstárlegar og snjallar lausnir sem munu auka skilvirkni og sjálfbærni í matvælaframleiðslu. Að lokum vil ég þakka viðskiptavinum okkar og starfsmönnum fyrir viðburðaríkt og ánægjulegt ár. Saman höldum við áfram að umbylta matvælaframleiðslu á heimsvísu.“

Breytingar í framkvæmdastjórn Marel

Frá og með 1. apríl 2017 mun David Wilson taka við af Remko Rosman sem framkvæmdastjóri Marel Meat. Jesper Hjortshøj mun taka við af David Wilson sem framkvæmdastjóri fullvinnslu (e. further processing frá og með 8. febrúar 2017.

Markaðsvöxtur nemi 4 til 6 prósentustigum

Marel gerir ráð fyrir því að markaðsvöxtur nemi 4 til 6 prósentustigum á næstu árum. „Með sterkri markaðsstöðu og nýsköpun ætlar Marel með innri vexti að vaxa hraðar en markaðurinn. Gera má ráð fyrir því að afkoman verði breytileg milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna. Að auki hyggst félagið halda áfram að vaxa með yfirtökum í samræmi við stefnu félagsins.