Hagnaður Marel á þriðja ársfjórðungi þessa árs nam 26,7 milljónum evra sem samsvarar 3,67 milljörðum íslenskra króna miðað við núverandi gengi. Til samanburðar hagnaðist fyrirtækið um 23,3 milljónir evra á sama tímabili í fyrra, en það samsvarar um 3,2 milljörðum íslenskra króna.

Tekjur félagsins á fjórðungnum námu 280 milljónum evra samanborið við 247 milljónir evra árið áður. Pantanir á þriðja ársfjórðungi námu 267,7 milljónum evra. EBIT nam 40 milljónum evra samanborið við 37,6 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi í fyrra.

Marel sækir fjármagn á þýska Schuldschein markaðinn

Marel sækir á nýja fjármagnsmarkaði til að auka fjölbreytileika í fjármögnun félagsins og hyggst gefa út óveðtryggt Schuldschein bréf. Núverandi lágvaxtaumhverfi gefur félaginu tækifæri til að nálgast langtíma fjármögnun á hagstæðum kjörum. Heildarupphæð fjármögnunarinnar verður að minnsta kosti 100 milljónir evra og verður fjárfestum boðið upp á bæði breytilega og fasta vexti til 5, 7 og 10 ára. Lánskjör ráðast ekki fyrr en söfnun áskrifta er lokið. Stefnt er að lokun útboðsins fyrir árslok og væntingar standa til að lánskjör hafi jákvæð áhrif á heildarfjármagnskostnað félagsins. Stjórnendur hafa falið ABN AMRO N.V, Bayerische Landesbank og Unicredit Bank AG að sjá um útboðið.

Stjórnendur félagsins gera ráð fyrir kröftugum innri vexti og góðri rekstrarniðurstöðu í uppgjöri ársins 2018. Þó eru horfur til skemmri tíma heldur lakari en áður var gert ráð fyrir. Markaðsaðstæður hafa verið einstaklega góðar að undanförnu en eru nú meira krefjandi.

Marel stefnir að 12% meðalvexti árlega yfir tímabilið 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samstarfi við lykilaðila og yfirtökum á fyrirtækjum.

„Við erum ánægð með rekstrarniðurstöðu þriðja ársfjórðungs sem og fyrstu níu mánuði ársins. Á fjórðungnum nam tekjuaukning á milli ára 14% og EBIT framlegð var 14,2%. Á fyrstu níu mánuðum ársins var tekjuvöxtur 17% og EBIT framlegð 14,6%. Hagnaður á hlut hefur aukist jafnt og þétt undanfarin fimm ár.

Á þriðja ársfjórðungi gengum við formlega frá kaupunum á MAJA að heildarvirði 35 milljónum evra og keyptum eigin bréf fyrir 30 milljónir evra. Fjárhagsstaða okkar er sterk og nettó skuldir nema um það bil tvisvar sinnum EBITDA.

Það eru áhugaverðir tímar á alþjóðamörkuðum í kjúklinga-, kjöt-, og fiskiðnaði. Viðskiptahindranir og umrót í alþjóðakerfinu mynda ósamræmi í framboði og eftirspurn matvæla innan heimshluta en á sama tíma er eftirspurn neytenda á heimsvísu að aukast. Þetta kann að hafa í för með sér minni nýfjárfestingar viðskiptavina okkar á næstu tveimur til þremur ársfjórðungum eftir kröftugan vöxt pantana í byrjun ársins. Neytendur leita í auknum mæli eftir öruggum og hagkvæmum matvælum og samhliða því eykst spurnin eftir hátæknilausnum til matvælavinnslu. Við störfum á ört vaxandi markaði og með sterkri markaðssókn og nýsköpun stefnir Marel að innri vexti umfram almennan markaðsvöxt.

Áform um skráningu hlutabréfa Marel í alþjóðlegri kauphöll ganga samkvæmt áætlun. Við höfum þrengt valkosti okkar niður í þrjár mögulegar kauphallir; Amsterdam, Kaupmannahöfn og Lundúnir. Nú er stefnt að tvíhliða skráningu þar sem hlutabréf Marel yrðu skráð í eina af ofangreindum kauphöllum til viðbótar við núverandi skráningu í íslensku kauphöllinni. Það er trú okkar að með því sé hagsmunum núverandi og verðandi hluthafa Marel best borgið,“ segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel.