Gengi hlutabréfa Marels hefur hækkað um 5,13% þegar þetta er skrifað í 1.135 milljón króna viðskiptum. Árshlutauppgjör Marels var kynnt í gær. 55,2% aukning var á hagnaði félagsins milli ára auk þess hefur pantanabók Marels aldrei verið stærri.

Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,96% það sem af er morgni. Einnig hefur veið talsverð velta með bréf Símans eða tæplega 500 milljón króna velta. Gengi bréfa félagsins hafa hækkað um 0,36% það sem af er morgni.