Margrét Sigríður Árnadóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ á Egilsstöðum í sumar, en hún er 27 ára, fædd og uppalinn á Reyðarfirði en búsett á Egilsstöðum, að því er segir í frétt félagsins.

Margrét starfar sem verkefnastjóri hjá viðburða- og þjónustufyrirtækinu Austurför á Egilsstöðum. Fyrirtækið rekur meðal annars Egilsstaðastofu, tjaldsvæðið á Egilsstöðum og sinnir verkefnum fyrir Þjónustusamfélagið á Héraði ásamt viðburðastjórnun ýmis konar. Þar á meðal stendur fyrirtækið Austurför fyrir Haustkvöldi og Jólaskemmtun Þjónustusamfélagsins.

Margrét er jafnframt formaður félagasamtakanna Ungt Austurland og skipulagði í vor byggðaráðstefnu um framtíð Austurlands á Borgarfirði eystri. Þar var leitast við að fá ungt fólk til að haf aáhrif á stefnumótun fyrir svæðið, byggðamál og ræða saman á jafningjagrundvelli um þróun fjórðungsins.

Margrét hefur komið að skipulagningu margra viðburða á Egilsstöðum, þar á meðal hjólreiðakeppninnar Tour De Ormurinn ásamt Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands (UÍA) undanfarin ár. Það er einmitt UÍA sem er er mótahaldari Unglingalandsmóts UMFÍ á Egilsstöðum um næstu verslunarmannahelgi.

Margrét hefur mikinn áhuga á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og sér fram á skemmtilegt mót um næstu verslunarmannahelgi. Nóg verður að gera hjá Margréti um verslunarmannahelgina enda búist við nokkuð þúsund börnum á aldrinum 11-18 ára á mótð á Egilsstöðum ásamt foreldrum og öðrum.