Margrét Sanders, formaður Samtaka verslunar og þjónustu frá árinu 2014, mun ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður á aðalfundi samtakanna 14. mars næstkomandi. Margrét, sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri hjá Deloitte og ráðgjafi hjá Strategíu, er nú oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ.

Í störfum sínum hjá SVÞ hefur hún lagt áherslu á menntun í atvinnulífinu, nútímavæðingu vinnumarkaðarins með auknum sveigjanleika vinnutíma og betra rekstrarumhverfi þjónustuaðila með auknum útboðum verkefna hjá hinu opinbera.

Í fréttatilkynningu frá SVÞ segir að á þeim tíma sem Margrét hafi verið formaður hafi margt áunnist, og þar beri hæst niðurfelling tolla og vörugjalda á árunum 2015 til 2017.

Sem dæmi um að Margrét hafi sett menntun í atvinnulífinu í forgang er nefnt sem afrakstur þess meðal annars ný og spennandi námsbraut til stúdentsprófs sem hefst í Verslunarskóla Ísland í haust.

Auk þess er sagt frá því að í störfum sínum hjá SVÞ hafi Margrét unnið ötullega að því að bæta rekstrarskilyrði einkareksturs í heilbrigðisþjónustu og skólamálum auk þess að víkka út starfsemi þjónustugeirans og tala fyrir auknum útboðum verkefna hjá hinu opinbera til einkaaðila.

Innan SVÞ og Samtaka atvinnulífsins hefur Margrét jafnframt að því er segir í tilkynningunni lagt mikla áherslu að nútímavæða vinnumarkaðinn og auka sveigjanleika vinnutíma til hagsbóta fyrir starfsfólk og atvinnurekendur.