Margrét Sanders mun ganga til liðs við ráðgjafafyrirtækið Strategíu ehf. í mars næstkomandi.

Margrét hefur síðustu 16 ár starfað hjá Deloitte sem eigandi og framkvæmdastjóri rekstrar. Margrét er auk þess formaður Samtaka verslunar og þjónustu, situr einnig í framkvæmdastjórn og stjórn Samtaka atvinnulífsins og í stjórn Amerísk íslenska viðskiptaráðsins.

Margrét er með viðskiptafræði- og MBA gráðu frá WCU háskóla í Norður Karólínu í Bandaríkjunum, en samhliða námi og að því loknu starfaði hún við ráðgjöf hjá McLaurin Consulting í Bandaríkjunum. Margrét lauk einnig háskólanámi frá KHÍ, og er með mikla kennslureynslu.