María Björg Ágústsdóttir hefur hafið störf hjá Íslandssjóðum þar sem hún stýrir viðskiptaþróun félagsins.

María sinnir einnig starfi fjármálastjóra 105 Miðborgar slhf., sem nú reisir íbúðir og skrifstofuhúsnæði á Kirkjusandsreit auk þess að gegna hlutverki framkvæmdastjóra fasteignafélagsins FAST-1 slhf., sem nýverið lauk söluferli á ríflega 22 milljarða króna fasteignasafni sínu.

María hefur á að skipa yfir 10 ára reynslu úr fjármálageiranum. Hún starfaði í fjárstýringu Glitnis banka og síðar hjá þrotabúi Glitnis sem forstöðumaður upplýsingamála og reksturs. Þá sat María í stjórn ISB Holding árin 2009-2016.

María lauk meistaranámi við University of Oxford árið 2007 í stjórnunarfræðum og BA-gráðu í hagfræði frá Harvard University árið 2006. María hefur lokið námi í verðbréfamiðlun og  einnig CAIA®-prófi, sem er alþjóðleg prófgráða í sérhæfðum fjárfestingum.

Þá á María að baki glæstan feril sem landsliðsmarkvörður í knattspyrnu og spilaði hér á landi með Stjörnunni, KR og Val áður en hún hélt út í atvinnumennsku hjá Örebro í Svíþjóð að því er segir í fréttatilkynningu.

Um Íslandssjóði

Íslandssjóðir, dótturfélag Íslandsbanka, er elsta sjóðastýringarfyrirtæki á Íslandi, en hjá félaginu starfar 21 sérfræðingur, 10 konur og 11 karlar. Íslandssjóðir stýra eignum sem nema um 266 milljörðum króna og yfir 10.000 sparifjáreigendur og fjárfestar ávaxta eignir sínar í sjóðum félagsins.

Félagið starfrækir úrval skuldabréfasjóða, hlutabréfasjóða og blandaðra sjóða. Íslandssjóðir hafa auk þess sérhæft sig í fasteignasjóðum og framtakssjóðum.