Mark Holyoake, aðaleigandi og stjórnarmaður í Icelandic Seafood International selur 42 milljón hluti í félaginu á tæplega 350 milljónir íslenskra króna.
Er það ríflega 3% hluta í fyrirtækinu en hann á enn um ríflega 42% í félaginu sem metið er á 11 milljarða miðað við söluverðið sem var 8,28 krónur á hlut.
Söluverðið nú er nokkuð hærra, eða næstum 12% en þegar hann seldi fyrir tæpan hálfan milljarð í lok mars síðastliðinn eins og Viðskiptablaðið sagði frá .
Þá fór eignarhlutur hans niður fyrir helming en í lok árs 2016 átti hann um 64% í félaginu. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá á sínum tíma samdi hann í upphafi árs 2010 um kaup á 73% hlut Kjalars ehf., félags Ólafs Ólafssonar í ISI.
Hér má lesa fleiri fréttir af málefnum Icelandic Seafood International:
- 28. mars 2018 - Holyoake kominn með minnihluta í ISI
- 2. september 2016 - Holyoake eykur hlut sinn í Iceland Seafood
- 1. september 2016 - Holyoake í stjórn ISI
- 1. júní 2011 - Ekki búið að ganga frá sölu á Iceland Seafood
- 15. apríl 2011 - Athugasemd frá Mark Holyoake vegna frétta af honum
- 14. apríl 2011 - Athugasemd vegna fréttaflutnings af Iceland Seafood
- 14. apríl 2011 - British Seafood til rannsóknar í Bretlandi
- 14. apríl 2011 - Holyoake eignast Iceland Seafood
- 3. júní 2010 - Réttarhöld yfir stærsta eiganda Iceland Seafood hafin
- 22. apríl 2010 - Breskir dómsstólar frysta eigur eiganda Iceland Seafood
- 23. febrúar 2010 - British Seafood í greiðslustöðvun
- 22. febrúar 2010 - Félag stærsta hluthafa Iceland Seafood í greiðslustöðvun
- 15. febrúar 2010 - Munum áfram keppa við Icelandic Group
- 11. febrúar 2010 - Helgi Anton nýr forstjóri Iceland Seafood