Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðar Egils Skallagrímssonar, var kjörinn Markaðsmaður ársins 2015 hjá ÍMARK, samtökum markaðsfólks á Íslandi. Verðlaunin eru veitt þeim einstaklingi, sem þykir hafa sýnt framúrskarandi árangur í markaðsstarfi á líðandi ári.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka tillkynnti úrslitin en hún var kjörin markaðsmaður ársins í fyrra.