Neytendastofa telur kynningu N1 á verðstefnu Dælunnar sem nýjungar á Íslandi vera villandi sem og slagorð Dælunnar væru sett fram með villandi hætti um það verðhagræði sem væri í boði.

Neytendastofa tók afstöðu til markaðssetningarinnar í kjölfar erindis Skeljungs hf. þar sem kvartað var undan henni sem og undan sumarleik N1 sumar 2016.

Slagorð sögð villandi

Taldi Skeljungur að slagorðin „þrír fyrir einn á eldsneyti" og „megahraðboðstilrýmingarsérverð“ væru villandi gagnvart neytendum og komst stofan að því að svo væri.

Einnig taldi Skeljungur að tenging punkta N1 við krónur væri villandi og ekki hefðu verið færðar sönnur á að tilgreint andvirði meðaleyðslu venjulegs fólksbíls væri rétt í slagorðinu:

Sumarleikur ekki villandi

„Viltu ferðast frítt með fjölskylduna í sumar? Fimm sigurvegarar munu hljóta 60.000 kr. í formi N1 punkta, þ.e. andvirði meðaleyðslu venjulegs fólksbíls í 3 mánuði“ í sumarleik N1.

Neytendastofa telur það þó ekki vera villandi þar sem hver punktur samsvari ávallt einni krónu í punktakerfi N1 sem og að rekstrarkostnaður fólksbíla væri í samræmi við rekstrarkostnaðartöflu Félags íslenskra bifreiðaeigenda.