Marta Guðjónsdóttir, sem verið hefur varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tekur í dag sæti sem borgarfulltrúi þegar Hildur Sverrisdóttir biðst  lausnar frá störfum í borgarstjórn vegna setu á Alþingi.

Marta hefur setið í mörgum ráðum og nefndum á vegum borgarinnar á þessu kjörtímabili s.s. í skóla- og frístundaráði, íþrótta- og tómstundaráði, menningar- og ferðamálaráði og hverfisráði Vesturbæjar.

Marta var formaður Varðar fulltrúaráðs sjálfstæðifélaganna í Reykjavík á árunum 2007-2010 og hefur gegnt fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn: „Þetta eru auðvitað tímamót á mínum pólitíska ferli þó að ég hafi nú þegar töluverða reynslu af borgarpólitíkinni. Borgarstjórn á sér merkilega sögu sem lítur að verklegum og félagslegum framförum í gegnum tíðina. Ég hlakka því til að vinna í þeim anda að hagsmunum borgarbúa,” segir Marta við tilefnið.