Matvælastofnun hefur kært fyrirtæki í bænum fyrir skjalafals, því stofnunin hefur rökstuddan grun um að fyrirtækið hafi falsað niðurstöður greininga á vatnssýni og reynt að blekkja stofnunina. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu stofnunarinnar þar sem segir að hún hafi fengið vatnssýni frá umræddu fyrirtæki sem ekki stóðst kröfur samkvæmt reglugerð um örverur.

Mætti því eftirlitsmaður á vegum stofnunarinnar í fyrirtækið 4. júlí síðastliðin til að skoða frekari sýni sem fyrirtækjunum er uppálagt sjálfum að taka, en forsvarsmaður fyrirtækisins sagðist ekki hafa nýjustu sýnin handbær. Síðar sama dag sendi fyrirtækið þó stofnuninni niðurstöður greiningar á vatnssýni frá viðurkenndri rannsóknarstofu sem dagsett var 12. júní 2017.

„Þar kom fram að vatnssýni sem fyrirtækið hefði afhent til greiningar uppfyllti kröfur reglugerðar um neysluvatn. Skjalið var á bréfsefni rannsóknastofunnar og undirritað af starfsmanni hennar.

Grunsemdir vöknuðu hjá eftirlitsmanni Matvælastofnunar um gildi skjalsins og hefur rannsóknastofan staðfest að það er ekki gefið út af henni. Forsvarsmaður fyrirtækisins hefur einnig játað að svo er ekki. Matvælastofnun álítur málið alvarlegt og ákvað að kæra það til lögreglu, þar sem hér er að mati stofnunarinnar um að ræða fullframið brot, en skjalafals er brot á almennum hegningarlögum.

Eftir viðræður við forráðamann fyrirtækisins má ætla að vatnssýni sem hann tók í byrjun ársins hafi mengast af sýnatökubúnaði, sem ekki var ætlaður til þeirra nota. Matvælastofnun hefur nú tekið vatnssýni hjá hlutaðeigandi fyrirtæki og reyndist það standast örverufræðileg viðmið um gæði neysluvatns. Stofnunin vill beina því til forráðamanna matvælafyrirtækja að bregðast strax við ef vatnssýni standast ekki kröfur og grípa þegar til viðeigandi ráðstafana til að tryggja öryggi og gæði matvæla.“