Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu á meintu tegundasvindli með fisk til útflutnings. Íslenskt fiskvinnslufyrirtæki er grunað um að hafa selt íslenskri umboðsverslun með fisk og fiskafurðir verðlitlar fiskafurðir (keilu) sem verðmeiri vöru (steinbít) á árunum 2010 og 2011.

Umboðsverslunin framseldi afurðirnar erlendum kaupendum.

Málið hófst þegar Matvælastofnun barst ábending um meint brot. Rannsókn Matvælastofnunar benti til þess að ábendingin ætti við rök að styðjast og var málinu því vísað til lögreglu. Brotið varðar blekkingarákvæði matvælalaga og almenn hegningarlög (fjársvik).