Neytendastofa hefur bannað bakaríunum Okkar bakarí, Sveinsbakarí og Guðnabakarí að notast við orðið konditori í vörumerki og auglýsingum. Kemur þetta fram í frétt á vefsíðu stofnunarinnar .

Stofnuninni barst kvörtun frá Konditorsambandi Íslands þar sem fram kom að rekstraraðilar bakaríanna hafi ekki réttindi til þess að nota þetta lögverndaða starfsheiti. Sambandið hafi orðið vart við að bakaríin hafi um nokkurt skeið notað orðið „konditori“ í atvinnurekstri sínum, sem fyrirtækjunum sé óheimilt. Samkvæmt iðnaðarlögum þarf að ljúka námi í kökugerð til þess að mega nota starfsheitið.

Neytendastofa taldi að notkun á heitinu „konditori“ í markaðssetningu gæfi með augljósum hætti til kynna að sá sem einkenni sig með heitinu hafi tilskilin réttindi til að nota heitið. Neytendastofa tók því ákvörðun um að notkun þeirra á orðinu konditori væri villandi gagnvart neytendum.