Formlegt söluferli á tæplega 54% hlut Kanadíska orkufyrirtækisins Innergex hófst fyrir um 10 dögum, samkvæmt frétt Markaðarins í morgun .

HS Orka er eina orkufyrirtækið á landinu í eigu einkafjárfesta, og á meðal annars 30% hlut í Bláa Lóninu. Gróflega áætlað er virði hlutar Innergex sagt geta numið um 30 milljörðum króna.

Kanadíski bankinn Bank of Montreal og íslenska fyrirtækið Stöplar Advisory verða ráðgjafar Inngergex í söluferlinu.

Rekstrartekjur HS Orku námu 7,5 milljörðum króna í fyrra og jukust um 6% milli ára, og hagnaður 4,6 milljörðum og jókst um helming (50%). Heildareignir námu tæpum 50 milljörðum um síðustu áramót og eiginfjárhlutfall 73%.