Nærri sjö af hverjum tíu Íslendingum eru mótfallnir frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi um að heimila sölu á áfengi í verslunum.
Meirihluti stuðningsmanna allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi er mótfallinn frumvarpinu.

Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar Rúnars Vilhjálmssonar, prófessors við Háskóla Íslands, en BSRB styrkir rannsóknir Rúnars að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá BSRB. Rannsóknin sem var unnin með Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands sýnir að alls eru 69,2% landsmanna andvíg því að frumvarpið verði að lögum en 30,8% eru því fylgjandi.

Andstaða við frumvarpið er mest meðal stuðningsmanna  Vinstri grænna, 88,8%, Samfylkingarinnar, 82,6%, og Framsóknarflokksins, 77,8%, en meirihluti stuðningsmanna allra flokka er andvígur frumvarpinu. Þannig eru 54,4% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins á móti frumvarpinu, 54,8% stuðningsmanna Viðreisnar og 56,8% þeirra sem styðja Bjarta framtíð. Þá eru  58,4% stuðningsmanna Pírata andvígir því að frumvarpið verði að lögum.

Marktækur munur er á afstöðu kynjanna til frumvarpsins. Þannig eru nærri fjórar af hverjum fimm konum, 77,8%, andvígar frumvarpinu, en um þrír af hverjum fimm körlum, 60,6%. Þegar afstaða landsmanna til frumvarpsins er skoðuð eftir aldri má sjá að meirihlutinn er andvígur  frumvarpinu í öllum aldurshópum öðrum en þeim yngsta.

Andstaðan eykst með hækkandi aldri. Aðeins hjá þeim  sem eru 18 til 29 ára er naumur meirihluti fylgjandi
frumvarpinu, alls 53,7%. Andstaðan við frumvarpið er meiri á landsbyggðinni, þar sem 74% eru því mótfallnir, en á
höfuðborgarsvæðinu, þar sem 66,5% eru andvígir þeirri breytingu sem boðuð er í frumvarpinu.